|
Melex rafbíllinn hefur náð miklum
vinsældum í Svíþjóð og
á öðrum Norðurlöndum. Hann er mikið
notaður á iðnaðarsvæðum, hjá
sveitarfélögum við götuhreinsun og garðyrkjustörf,
útburð á pósti, á íþróttavöllum,
golfvöllum, flugvöllum, á ferðamannastöðum,
í sendiferðum og í mörgum öðrum
tilfellum.
Það kemur flestum á óvart hve Melex
rafbíllinn er snöggur, lipur í snúninga
og að hann líður hljóðlaust um.
Það er oft fljótlegra að fara með
sendingar á Melex því hann kemst
nær alltaf upp að dyrum og jafnvel inn í
hús þegar stærri tæki komast ekki
að.
Melex rafbíllinn er til í ýmsum útfærslum (smellið á myndirnar hér til vinstri), s.s. yfirbyggður eða með blæjum, opnum palli eða yfirbyggðu vörurými og í tveim mismunandi lengdum. Hann getur náð 24 eða 30 km/klst. hámarkshraða, og fæst því skráður sem vinnuvél og fellur því ekki undir lög um þungaskatt. Orku- og rekstrarkostnaður er því mjög lágur. Benda má á góða reynslu Íslenska Álfélagsins hf. af Melex rafbílum.
Vinsamlegast hafið samband við:
Íslyft, ehf.
Vesturvör 32
200 Kópavogi
564-1600
|